Tveir framhaldsskólanemar tóku þátt í Evrópukeppni ungra vísindamanna í Tallin 2017 með tvö framúrskarandi rannsóknaverkefni sem kepptu til úrslita í Landskeppni ungra vísindamanna.

Landskeppnin fór fram í Háskóla Íslands 6. apríl 2017. Tvö rannsóknarverkefni höfðu verið valin til þátttöku og höfðu keppendur unnið að þeim undanfarna mánuði. Dómnefnd keppninnar mat bæði verkefni sem framúrskarandi og aðeins herslumunur skildi milli fyrsta og annars sætis.

Vífill Harðarson, nemandi við Menntaskólann í Hamrahlíð, varð í fyrsta sæti með verkefnið „Can Icelandic cod oil be as efficiently saponified as coconut oil?“  Þar rannsakaði hann hvort nýta mætti hliðarafurð við framleiðslu lýsis til að búa til sápu. Með verkefninu vildi Vífill stuðla að því að auðlindir við Íslandsstrendur yrðu betur nýttar, meðal annars vegna umhverfissjónarmiða. Leiðbeinandi Vífils var Stefan Christian Otte, kennari við MH, en Vífill naut einnig aðstoðar Guðmundar G. Haraldssonar, prófessors í efnafræði við Háskóla Íslands og fékk stuðning frá LÝSI hf.

Í öðru sæti urðu Herdís Ágústa Linnet og Hafþór Freyr Líndal með verkefnið „Staða barna í leit að alþjóðlegri vernd á Íslandi“. Líkt og heitið gefur til kynna rannsökuðu þau hvort og hvernig Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er framfylgt á Íslandi við mótttöku barna á flótta. Herdís og Hafþór eru bæði í Ungmennaráði Barnaheilla en Herdís stundar nám við MH  og Hafþór í Þýskalandi. . Lögfræðingur Barnaheilla, Þóra Jónsdóttir, leiðbeindi þeim við verkefnið en þar að auki nutu þau stuðnings Ernu Kristínar Blöndal, doktorsnema í lögfræði við Háskóla Íslands.

Í dómnefnd sátu Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarsetra Háskóla Íslands (formaður), Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins, og Birgir Á. Urbancic framhaldsskólakennari. Sem fyrr segir var það mat dómnefndar að um tvö mjög frambærileg verkefni væri að ræða. Þá tók dómnefndin það fram að það væri sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig keppendur hefðu valið sér verkefni með það í huga að bæta samfélag sitt með einhverjum hætti og sýna þannig samfélagslega ábyrgð.

Dómnefndin mælti með því að bæði verkefnin fengju að fara alla leið í Evrópukeppni ungra vísindamanna. Því tóku Vífill og Herdís þátt í þeirri keppni en hún var haldin í Tallin í Eistlandi í september 2017.

Landskeppni ungra vísindamanna er aftur hafin, umsóknarfrestur er 1.febrúar 2019 og geta áhugasamir kynnt sér keppnina hér á síðunni.