Frestur til skráningar til að sækja um þátttökurétt í forvali fyrir Landskeppni Ungra vísindamanna yfirleitt í janúar ár hvert.

Við skráningu eru nemendur beðnir um að skrifa stutta lýsingu á verkefninu, en lengri og ítarlegri lýsing á verkefninu má endilega fylgja með.

Verkefnin í keppninni þurfa ekki endilega að vera hrein nýsköpun, hugmyndirnar mega vera byggðar á eldri verkefnum nemenda eða vísindamanna. Aðalatriðið er að nota hina vísindalegu aðferð, finna nýjan flöt eða koma með nýja hugmynd án þess að eigna sér hugmyndir annarra. Þannig á að kynna það sem aðrir hafa gert á sama eða svipuðu sviði og byggja nýjar hugmyndir ofan á.

Verkefni í Ungum vísindamönnum eru metin út frá tveimur þáttum;

    1. Annars vegar skrifa þátttakendur skýrslu um rannsóknina og skal henni skilað í síðasta lagi um miðjan apríl. Skýrslan á að vera á íslensku og eru góð ráð um gerð skýrslu hér að neðan.
    2. Hins vegar kynna þátttakendur verkefnið munnlega fyrir dómurum og öðrum viðstöddum á Landskeppni.

Dómnefndin ákvarðar úrslit bæði út frá gæðum skriflegrar skýrslu og munnlegrar kynningar.

Eftir Landskeppni fá sigurvegarar keppninnar tækifæri til að lagfæra rannsóknarskýrsluna með athugasemdir dómnefndir í huga. Því næst er hún þýdd yfir á ensku af þýðanda á vegum Háskóla Íslands.

Líkt og í Landskeppni eru verkefni í Evrópukeppni metin út frá skriflegum skýrslum og munnlegum kynningum. Þátttakendur kynna verkefni sín á básum sem þeir mega skreyta með skýringaplakötum, líkönum og öðru sem verkefninu tengist.

Góð ráð um gerð rannsóknarskýrslu

Ritað efni fyrir Evrópukeppni