EÐLISFRÆÐI
Eðlisfræði er sú grein náttúruvísindanna sem fjallar um samhengi efnis, orku, tíma og rúms og beitir vísindalegum aðferðum við hönnun líkana, sem setja náttúrufyrirbæri í stærðfræðilegan búning.
EFNAFRÆÐI
Efnafræði er sú grein vísindanna sem fjallar um þau efni, sem finnast í heiminum, jafnt frumefni sem samsett efni.
EFNISFRÆÐI
Efnisfræði og verkfræði er þverfaglegt viðfangsefni sem fjallar um rannsóknir og þróun efna og efna. Efnisfræði, með náttúrulegri – vísindalegri nálgun, fjallar um framleiðslu efna og lýsingu þeirra á uppbyggingu og eiginleikum
FÉLAGSVÍSINDI
Félagsvísindi er flokkur vísindagreina sem fást við rannsóknir á samfélagi manna. Félagsvísindi eru því regnhlífarhugtak yfir ýmsar greinar sem ekki teljast til náttúruvísinda og eiga það sameiginlegt að fjalla um manninn og mannleg samfélög.
HEILBRIGÐISVÍSINDI
Læknisfræði er sú fræðigrein sem fjallar um lækningar og viðbrögð við sjúkdómum. Í víðum skilningi orðsins eru nokkrar starfsstéttir sem starfa að lækningum, svo sem læknar, hjúkrunarfræðingar, lyfjafræðingar og sjúkraþjálfar
LÍFFRÆÐI
Líffræði eða lífvísindi er sú vísindagrein sem fjallar um lífið. Allir þættir lífs eru rannsakaðir, allt frá efnasamsetningu lífvera að umhverfi þeirra og atferli. Einnig er fjallað um sögu lífs frá uppruna og þróun þess fram til okkar daga.
STÆRÐFRÆÐI
Stærðfræði er rökvísindi sem beitir ströngum, rökfræðilegum aðferðum til að fást við tölur, rúm, ferla, varpanir, mengi, mynstur, breytingar o.þ.h. Einnig er stærðfræði sú þekking sem leidd er út með rökréttum hætti frá ákveðnum fyrirframgefnum forsendum sem kallaðar eru frumsendur.
TÖLVUNARFRÆÐI
Í víðasta skilningi lýtur tölvunarfræði að rannsóknum á upplýsingavinnslu og reikningsaðferðum, bæði í hugbúnaði og vélbúnaði.
UMHVERFISFRÆÐI
Umhverfisfræði er þverfagleg fræðigrein sem sameinar mörg ólík svið á borð við náttúrufræði, heimspeki, jarðsögu, landfræði, líffræði, efnafræði og eðlisfræði. Umhverfisfræði fjallar meðal annars um umhverfissiðfræði, samspil manns og náttúru og sjálfbærni.
VERKFRÆÐI
Verkfræði er fræði- og starfsgrein, sem beitir vísindalegum aðferðum, sem byggjast einkum á stærðfræðigreiningu og eðlisfræði, við hönnun, rannsóknir, verkstjórnun, eftirlit o.fl.